Sælgætisgerðin
24, ágúst 2024
Opið frá: 19.00 - 20.00
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Sælgætisgerðin var sýrudjass og fönksveit sem gerði garðinn frægan á árunum 1994-1997. Hljómsveitin spilaði alla sunnudaga í u.þ.b. 2 ár á Glaumbar og var oftar en ekki fullt út úr dyrum.
Hljómsveitin gaf út plötuna Acid jazz og fönk sem var tekin upp live á Glaumbar og komust færri að en vildu. Allir meðlimir sveitarinnar hafa átt nokkuð farsælan feril í tónlist og eru allir virkir í senunni í dag. Það þótti því tími og við hæfi að kalla saman þessa gamalgrónu og miklu stemningssveit. Sælgætisgerðin heldur 30 ára afmælistónleika í Gamla Bíó 13. september næstkomandi.