Hátíðir
Reykjavík er sannkölluð hátíðarborg þar sem tónlist, kvikmyndir, listir og ómótstæðilegar kræsingar fá að njóta sín allt árið.
Reykjavíkurborg stendur fyrir fjölda viðburða og hátíða allt árið um kring. Einnig hefur borgin komið að og styrkt ýmis hátíðarhöld í gegnum árin meðal annars í gegnum borgarhátíðarsjóð. Hápunktur viðburðahalds í Reykjavík er vafalaust Menningarnótt í ágúst en það er miðborgarhátíð í orðsins fyllstu merkingu sem höfðar til breiðs hóps fólks.
Borgarhátíðir
Reykjavíkurborg styður við menningarhátíðir í borginni með samstarfssamning til þriggja ára. Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkurborgar auglýsir eftir umsóknum.
Þær hátíðir sem verða borgarhátíðir fá fjárframlag og þriggja ára samstarfssamning við borgina.
Markmið samstarfsins er að styðja samfellu, framþróun og rekstrarlegan grundvöll hátíða í Reykjavík. Stuðla að alþjóðlegum tengslum, jákvæðum áhrifum á ferðamennsku og ímynd Reykjavíkur.