Barrio 27
24, ágúst 2024
Opið frá: 18.00 - 19.00
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Barrio 27 er 16 manna hljómsveit sem spilar hressa og dansvæna latíntónlist með áherslu á tónlist frá Mið-Ameríku, s.s. Kúbu og Puerto Rico. Eitt af meginmarkmiðum sveitarinnar er að gera latíntónlistarsenuna á Íslandi stærri og meira áberandi. Í sumar hefur hljómsveitin æft upp prógramm sem samanstendur af gömlum latínperlum á borð við Quimbara (Celia Cruz) og Indestructible (Ray Barretto) í bland við nýtt efni frá latínhljómsveitum samtímans.