Ragga Gísla og Halldór Gunnar láta Hörpu hljóma með gestum menningarnætur
24, ágúst 2024
Opið frá: 17.45 - 18.15
Vefsíða
https://www.harpa.is/dagskra?category=menningarn%C3%B3tt
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Okkar eina sanna, Ragnhildur Gísladóttir og Fjallabræðrafaðirinn og tónlistarmaðurinn Halldór Gunnar Pálsson slá lokahljóminn í dagskrá Hörpu á Menningarnótt þegar þau leiða gesti í samsöng.
Þau hafa gaumgæfilega valið bestu blöndu af lögum Röggu og alþýðulögum sem öll þekkja auk þess sem óvæntur smellur úr fortíðinni fær að fljóta með. Textar af lögunum verða aðgengilegir í söngbók sem verður hægt að sækja á vef Hörpu svo gestir geta tekið hraustlega undir af öllum hæðum í alrými Hörpu.