Knút - Færeysk dagskrá í Kaldalóni, Hörpu
24, ágúst 2024
Opið frá: 15.10 - 15.40
Vefsíða
https://www.harpa.is/dagskra?category=menningarn%C3%B3tt
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Knút kynnir nýju útgáfu sína Hjartasláttur (Tutl, 2023) fyrir áhorfendum 2024. Lykilorð tónlistar Knúts eru uppörvun, nútími, skynörvun, gospel, víðfeðmi, kraftur og einlægni.
Knút hefur verið miðpunktur á færeyska tónlistarsviðinu síðan um aldamótin og hefur áður gefið út þrjár einleiksplötur. Á Menningarnótt mun Knút og hljómsveitin hans spila lögin af nýju plötunni fyrir áheyrendur.
Á plötunni Hjartasláttur eru níu lög, en Knút Háberg Eysturstein á bæði lög og texta við sex þeirra og við hin þrjú hefur Knút samið lög við texta eftir færeyska skaldið Regin Dahl (1918-2007). „Tónlist hefur fyrir mér alltaf verið eitthvað yfirskilvitlegt. Hún hefur ávallt verið mín undankomuleið“
Færeyskir listamenn hafa í áraraðir verið hluti af dagskrá Menningarnætur í Hörpu og fer hún fram í Kaldalóni líkt og fyrri ár.