Sumarsól
27, ágúst 2024
Opið frá: 12.00 - 13.00
Vefsíða
https://tix.is/en/event/17987/sumarsol-hadegistonleikar-voices-of-the-summer-sun-lunchtime-concert/
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Á tónleikunum Sumarsól er boðið upp á fjölbreytta dagskrá og sungið um sólina, ástina og sjóinn. Flutt verða falleg íslensk og erlend sönglög í bland við óperuaríur og dúetta. Á dagskránni eru meðal annars dúettinn Ó, blessuð vertu sumarsól í útsetningu Jónasar Ingimundarsonar, Blómadúettinn úr Lakmé, grípandi sönglög eftir Jón Múla, Fauré, Reynaldo Hahn, Édith Piaf, Kurt Weill og Pál Ísólfsson. Listamennirnir munu leiða áheyrendur í gegnum dagskrána með stuttum kynningum.
Tónleikarnir eru um klukkutími að lengd.
Listamenn:
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran
Hallveig Rúnarsdóttir sópran
Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari
Matthías Stefánsson fiðluleikari
Listrænn stjórnandi: Sigríður Ósk Kristjánsdóttir