Danstími Dans Brynju Péturs
10, júlí 2024
Opið frá: 18.45 - 20.15
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Ert þú dansari og langar að taka þátt í risastóru dansverkefni í sumar?!😍
Dans Brynju Péturs í samstarfi við Sumarborg Reykjavíkur ætlar að bjóða þér í danstíma þann 10. júlí kl. 18:45-20:15 í Reebok Fitness Holtagörðum!
Eftir danstímann mun Dans Brynju Péturs velja nokkra hæfileikaríka dansara á aldrinum 12-18 ára til að taka þátt í æfingum og sýningum út um allt höfuðborgarsvæðið í sumar!
Æfingartímabilið verður frá 11. júlí til 2. ágúst og því mikilvægt að þeir dansarar sem hafa áhuga á að taka þátt séu lausir á því tímabili - annars eru auðvitað allir velkomnir í danstímann!☀️
Hlökkum til að sjá ykkur!❤️