Kvöldgöngur │ Hjólað í listina
11, júlí 2024
Opið frá: 20.00 - 21.30
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Í þessari kvöldgöngu verður ekki gengið heldur hjólað á milli níu útilistaverka í Breiðholti.
Viðburðurinn hefst kl. 20.00 og er upphafsstaður í Mjóddinni, norðan megin við Sambíóin við listaverkið Sólarauga eftir Jón Gunnar Árnason. Halla Margrét Jóhannesdóttir verkefnisstjóri miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur hefur umsjón með hjólaleiðsögninni.
Hjólaleiðsögnin er samstarf Listasafns Reykjavíkur og Hjólafærni.
Gestir eru beðnir um að klæða sig eftir veðri.