Kvöldgöngur: Hjólað í listina
Álfabakki 10, 109 Reykjavík
Dagsetningar
Álfabakki 10, Breiðholt
11, júlí 2024
Opið frá: 20.00 - 21.30
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Í þessari kvöldgöngu verður ekki gengið heldur hjólað á milli níu útilistaverka í Breiðholti.
Viðburðurinn hefst kl. 20.00 og er upphafsstaður í Mjóddinni, norðan megin við Sambíóin við listaverkið Sólarauga eftir Jón Gunnar Árnason.
Hjólaleiðsögnin er samstarf Listasafns Reykjavíkur og Hjólafærni.
Gestir eru beðnir um að klæða sig eftir veðri.