Vængjasláttur - Lokahátíð Listhópa & Götuleikhúss Hins Hússins
11, júlí 2024
Opið frá: 16.00 - 18.00
Vefsíða
http://www.hitthusid.is
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Listhópar og Götuleikhús Hins Hússins kynna uppskeru sumarsins með götuhátíð í miðborg Reykjavíkur. Eitthvað fyrir öll en það má finna tónlistaratriði, gjörninga, myndlistarsýningu og götuleik. Fullkomið fyrir listunnendur, fjölskyldur eða forvitna.
Í Listhópum Hins Hússins gefst ungu fólki kostur á að sækja um og koma með hugmyndir að skapandi verkefnum og valdir hópar eða einstaklingar fá tækifæri til að vinna að hugmyndum sínum í átta vikum. Þessi verkefni eru afar fjölbreytt, skapandi og skemmtileg og eru sýnileg vegfarendum Reykjavíkurborgar.
Nánari dagskrá og staðsetningar birtar hér síðar.