Lesum og spjöllum á íslensku
15, apríl 2023 - 14, desember 2024
(sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 11.30 - 13.30
Vefsíða
https://borgarbokasafn.is/en/event/literature/chat-and-read-icelandic-0
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Lesum og spjöllum er hluti af viðburðaröðinni Spjöllum með hreim, þar sem boðið er upp á fjölbreyttar og skemmtilegar leiðir til að æfa sig að tala íslensku undir handleiðslu reyndra kennara.
Við lesum öll sömu bókina og hittumst einu sinni í mánuði til að ræða hana, spyrja kennarann spurninga og segja frá upplifun okkar. Bókaklúbburinn er hugsaður fyrir þau sem eru á stigi B1-B2 í íslensku.
Við byrjum á að lesa bókina Árstíðir eftir Karítas Hrund Pálsdóttur. Þau sem eiga bókasafnskort geta fengið bókina lánaða á safninu.
Þátttaka er ókeypis.