Núritun Live Coding Space | Hittingur

Tryggvagata 15, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Borgarbókasafnið Grófinni
07, október 2024 - 18, nóvember 2024 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 16.30 - 18.00

Vefsíða https://borgarbokasafn.is/vidburdir/kaffistundir/nuritun-live-coding-space-hittingur
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Forvitnir forritarar, flytjendur, tónskáld og listamenn! Langar ykkur að bæta við þekkingu og getu í tónsmíðum eða forritun? Þá er Núritun Live Coding Space kannski málið! Búum til samfélag fyrir skapandi núritara, þar sem við lærum hvert af öðru og dýpkum þekkingu okkar á live coding.

Núritun Live Coding Space er opið rými fyrir öll sem hafa áhuga á núritun (live coding), byrjendur jafnt sem lengra komin. Staður til að tengjast, vinna að verkefnum og læra nýja og skapandi tækni. Engin þörf er á reynslu í kóðun eða menntun í tónlist, það eina sem þarf er forvitni og opinn hugur.

Við hittumst í Tónlistar- og myndvinnsluverinu í Grófinni á 5. hæð. Þetta eru opnir hittingar, svo ykkur er velkomið að mæta í öll skiptin, eða bara þegar ykkur hentar.

Dagskrá: Núritun Live Coding Space

16. september | Inngangur að Live Coding
23. september | Leggjum línurnar
7. október | Hittingur
21. október | Hittingur
18. nóvember | Hittingur

„Live Coding“ eða núritun er skapandi nálgun á forritun þar sem flytjandinn býr til tónlist eða myndlist með því að skrifa, breyta og meðhöndla kóða í rauntíma, venjulega fyrir framan áhorfendur. Á síðustu áratugum hefur þessi iðkun orðið að kraftmikilli skapandi listgrein á menningar- og tæknisviðum, meðal annars í tónlist, myndlist og tölvunarfræði. Í núritun fer sköpunin og tónsmíðin fram í rauntíma. Flytjandinn getur haft áhrif á flutninginn með myndefni, hreyfingu eða hverju sem er sem hægt er að stjórna. Kóðanum er oft varpað á skjá þar sem áhorfendur geta fylgst með.

Aldur: 16 ára og eldri
Engin skráning
Fer fram á íslensku og ensku.

Nánari upplýsingar:
Karl James Pestka
karl.james.pestka@reykjavik.is | 665 0898

Svipaðir viðburðir

Núritun Live Coding Space | Leggjum línurnar
Árskorthafar | Er þetta list?
Sýningaropnun | Hreinn Friðfinnson: Endrum og sinnum
Hafnar.fest 2024: Opið hús
Ull
Landnámssmiðja fyrir börnin / Þátttaka er ókeypis!
Káffipása - Myndlistarsýngin Sigtryggar Bergs Sigmarssonar
Samverustund til að fagna lífi og list Hreins Friðfinnssonar (1943-2024).
Leiðsögn á pólsku
Lady Brewery x Hafnarhús | Bjór & Pikkl
Opið fyrir umsóknir í D-sal 2025
Hipsumhaps í Hannesarholti
Óþekkt alúð
„Við sjáum það sem við viljum sjá“
Fyrir foreldra, ömmur og afa og áhugasama fullorðna – Komið og lærið um Kurrkvarðann
Heimili Heimsmarkmiðanna: Að klæða sig sjálfbært?
Syngjum Saman með Hörpu Þorvaldsdóttur
Fróðleikskaffi | Garðahönnun 101
Skráning á verkum Gísla B. Björnssonar
Pappírsblómasmiðja | Búum til fallega Garðasól

#borginokkar