Hafnar.fest 2024: Opið hús
21, september 2024
Opið frá: 13.00 - 18.00
Vefsíða
http://hafnar.community
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Hafnar.haus í Hafnarhúsinu hýsir vinnustofur hátt í 300 listafólks, hönnuða, frumkvöðla og annars skapandi fólks. Innan okkar veggja fer fram samsköpun, vinnustofur, fyrirlestrar og samstarf hverskonar í suðupotti tilrauna og forvitni á hverjum degi.
Nú í september á hafnar.haus tveggja ára afmæli, og bjóðum við því í opið hús, þar sem listafólk opnar vinnustofur sínar gestum og gangandi. Örviðburðir og pop up sýningar verða víðsvegar í húsinu, og hægt verður að flæða um 3.700 fermetra af þessu æðakerfi sköpunar, og taka púlsinn af því sem fer fram í stærsta samvinnurými borgarinnar.
Ókeypis er inn og allir velkomnir.