Núritun Live Coding Space | Leggjum línurnar

Tryggvagata 15, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Borgarbókasafnið Grófinni
23, september 2024
Opið frá: 16.30 - 18.00

Vefsíða https://borgarbokasafn.is/vidburdir/fraedsla/nuritun-live-coding-space-leggjum-linurnar
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Forvitnir forritarar, flytjendur, tónskáld og listamenn! Langar ykkur að bæta við þekkingu og getu í tónsmíðum eða forritun? Þá er Núritun Live Coding Space kannski málið! Á þessum fyrsta hitting getur þú deilt hugmyndum þínum og hjálpað til við að móta þessa nýjung á bókasafninu.

Núritun Live Coding Space er opið rými fyrir öll sem hafa áhuga á núritun (live coding), byrjendur jafnt sem lengra komin. Staður til að tengjast, vinna að verkefnum og læra nýja og skapandi tækni. Engin þörf er á reynslu í kóðun eða menntun í tónlist, það eina sem þarf er forvitni og opinn hugur.

Við ætlum að spjalla saman og heyra hvað þú vilt fá út úr Núritun Live Coding Space. Hér eru nokkrar hugmyndir til að koma okkur af stað.

Opnir tímar: Tími til að prófa sig áfram, gera tilraunir og fá aðstoð. Í tónlistar og myndvinnsluverinu í Grófinni, þar sem við hittumst er boðið upp á öll helstu tónlistar- og myndvinnsluforrit.
Almenn kennsla í núritun: Lærum grunnatriðin í forritum eins og Strudel TidalCycles.
Köfum dýpra: Skoðum tól eins og Max/MSP, Pure Data, Ableton Live, TouchDesigner. Prófum okkur áfram í að smíða hljóðfæri og forrit frá grunni, til dæmis með Arduino.
Við hittumst í Tónlistar- og myndvinnsluverinu í Grófinni á 5. hæð og skoðum hvernig við getum skapað líflegt og gott rými fyrir áhugafólk um lifandi kóðun!

Dagskrá: Núritun Live Coding Space

16. september | Inngangur að Live Coding
23. september | Leggjum línurnar
7. október | Hittingur
21. október | Hittingur
18. nóvember | Hittingur

„Live Coding“ eða núritun er skapandi nálgun á forritun þar sem flytjandinn býr til tónlist eða myndlist með því að skrifa, breyta og meðhöndla kóða í rauntíma, venjulega fyrir framan áhorfendur. Á síðustu áratugum hefur þessi iðkun orðið að kraftmikilli skapandi listgrein á menningar- og tæknisviðum, meðal annars í tónlist, myndlist og tölvunarfræði. Í núritun fer sköpunin og tónsmíðin fram í rauntíma. Flytjandinn getur haft áhrif á flutninginn með myndefni, hreyfingu eða hverju sem er sem hægt er að stjórna. Kóðanum er oft varpað á skjá þar sem áhorfendur geta fylgst með.

Aldur: 16 ára og eldri
Engin skráning
Fer fram á íslensku og ensku.

Nánari upplýsingar veitir:
Karl James Pestka
karl.james.pestka@reykjavik.is | 665 0898

Svipaðir viðburðir

Núritun Live Coding Space | Leggjum línurnar
Árskorthafar | Er þetta list?
Sýningaropnun | Hreinn Friðfinnson: Endrum og sinnum
Hafnar.fest 2024: Opið hús
Ull
Landnámssmiðja fyrir börnin / Þátttaka er ókeypis!
Káffipása - Myndlistarsýngin Sigtryggar Bergs Sigmarssonar
Leiðsögn á pólsku
Lady Brewery x Hafnarhús | Bjór & Pikkl
Samverustund til að fagna lífi og list Hreins Friðfinnssonar (1943-2024).
Opið fyrir umsóknir í D-sal 2025
Hipsumhaps í Hannesarholti
Óþekkt alúð
„Við sjáum það sem við viljum sjá“
Fyrir foreldra, ömmur og afa og áhugasama fullorðna – Komið og lærið um Kurrkvarðann
Heimili Heimsmarkmiðanna: Að klæða sig sjálfbært?
Syngjum Saman með Hörpu Þorvaldsdóttur
Fróðleikskaffi | Garðahönnun 101
Skráning á verkum Gísla B. Björnssonar
Pappírsblómasmiðja | Búum til fallega Garðasól

#borginokkar