Dragstund á ensku með Starínu
11, ágúst 2024
Opið frá: 13.30 - 14.30
Vefsíða
https://borgarbokasafn.is/vidburdir/bokmenntir/hinsegin-dagar-dragstund-med-starinu-1
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Verið velkomin á litríka sögustund með Starínu í Grófinni þar sem hinseginleikinn er í forgrunni.
Starína les sögu á ensku og skemmtir börnunum þar sem hinsegin sögupersónur koma fyrir, hvetur til spurninga og fagnar fjölbreytileikanum. Eftir lesturinn geta börnin heilsað upp á Starínu og fengið mynd af sér með henni.
Sögustundin hentar börnum á aldrinum 4-7 ára.
Starína hefur haldið ófáar DragStundir síðastliðin ár og er margreynd í listforminu. Árið 2003 kom hún fyrst fram, tók þátt í sinni fyrstu Gleðigöngu og var krýnd dragdrottning Íslands!
Vekjum athygli á að Starína verður með sögustund sem fer fram á íslensku sama dag kl. 16:00.
Nánari upplýsingar veitir:
Anna Magnúsdóttir Eirúnardóttir, sérfræðingur
anna.magnusdottir.eirunardottir@reykjavik.is | 411 6100