Glæpafár á Íslandi | Yrsa Sigurðardóttir situr fyrir svörum
14, september 2024
Opið frá: 13.15 - 14.15
Vefsíða
https://borgarbokasafn.is/vidburdir/bokmenntir/glaepafar-islandi-yrsa-sigurdardottir-situr-fyrir-svorum-0
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Hefur þú áhuga á glæpaskrifum?
Borgarbókasafnið efnir til ritsmiðju í glæpasagnaskrifum í tilefni af dagskránni Glæpafár á Íslandi. Rithöfundur, Yrsa Sigurðardóttir, kíkir í heimsókn í lok smiðjunnar, spjallar um eigin skrif og situr fyrir svörum jafnt nemenda sem annarra áhugasamra gesta.
Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og leiðbeinandi stýrir umræðum.
Viðburðurinn er hluti af dagskránni Glæpafár á Íslandi sem haldin er í samstarfi við Hið íslenska glæpafélag, sem fagnar 25 ára afmæli í ár.
Öll velkomin og aðgangur er ókeypis.
Sjá yfirlit yfir viðburði Borgarbókasafnsins sem heyra undir Glæpafár á Íslandi. https://borgarbokasafn.is/glaepafar-islandi
Verkefnið Glæpafár á Íslandi er styrkt af Bókasafnasjóði.