Glæpafár á Íslandi | Bókmenntaganga - Bræður, systur og glæpir
03, september 2024
Opið frá: 20.00 - 21.30
Vefsíða
https://borgarbokasafn.is/vidburdir/bokmenntir/glaepafar-islandi-bokmenntaganga-braedur-systur-og-glaepir-0
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Katrín Jakobsdóttir er nú þekktust fyrir önnur störf sín en upphaflega var hún sérfræðingur í sögu og þróun glæpasögunnar, m.a. elstu glæpasögunum sem áttu sér stað á Hótel Borg og Klapparstígnum en einnig sögum Arnaldar Indriðasonar sem komu Norðurmýrinni og Grafarholti rækilega inn í íslenska bókmenntasögu.
Ármann Jakobsson er bróðir hennar og hefur sent frá sér einar sex sögur um glæp, m.a. eina sem er staðsett nálægt Háskólanum og aðra sem gerist einkum á Freydísargötu sem nú er einmitt að verða til á höfuðborgarsvæðinu.
Hversu mikilvægt er borgarlandslagið fyrir sakamálasöguna og hvernig mótast sögur af staðarvalinu?
Gangan hefst við Borgarbókasafnið Grófinni, við Tryggvagötu 15.
Öll hjartanlega velkomin.
Bókmenntagangan er hluti af dagskránni Glæpafár á Íslandi í tilefni af 25 ára afmæli Hins íslenska glæpafélags. Sjá dagskrá Borgarbókasafnsins hér: https://borgarbokasafn.is/glaepafar-islandi
Verkefnið Glæpafár á Íslandi er styrkt af Bókasafnasjóði.