Slóðir
24, ágúst 2024
Opið frá: 12.00 - 20.00
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Myndlistasýning, listamaðurinn Erlingur Valgarðsson verður á staðnum frá kl 16:00-20:00
Leiðin út í víðáttuna, óræðan fjarskann þar sem himinn og jörð verða eitt, er leið hugans til rósemdar og hvíldar í algerri kyrrð. Jafnframt er hún leiðin heim – stundum ógreinileg, stundum vörðuð eftir fyrri ferðir eða gengnar kynslóðir, því öllum er nauðsyn að finna fegurðina í einverunni undir stórum himni – að fara þessa ferð.
Fetum okkur eftir þessari slóð uns við finnum okkar griðastað – kannski í grónum haga, kannski á blásnum mel – og hittum okkur sjálf fyrir.
Öruggum strokum leiðir listamaðurinn okkur á þessar heillandi slóðir þar sem náttúran og tíminn ríkja. Þangað leitum við griða.
Því listin heldur áfram að gefa svo lengi sem við kjósum að þiggja.