Fílalag og Sinfó á Menningarnótt

Austurbakki 2, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
24, ágúst 2024
Opið frá: 15.00 - 16.00

Vefsíða https://www.sinfonia.is/tonleikar-og-midasala/opid-hus-a-menningarnott-3
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Á Menningarnótt í Reykjavík býður Sinfóníuhljómsveit Íslands gestum og gangandi á litríka og skemmtilega tónleika fyrir alla fjölskylduna í Eldborg. Aðgangur á tónleikana er ókeypis, hægt er að sækja miða á sinfonia.is og í miðasölu Hörpu á tónleikadegi frá kl. 10:00.

Á tónleikunum í ár eru það stjórnendur hins geysivinsæla hlaðvarps Fílalags, þeir Bergur Ebbi og Snorri Helgason, sem leggja á djúpið og „fíla“ vinsæla klassík eftir tónskáld á borð við Mozart, Önnu Þorvaldsdóttur, Strauss, Prokofíev, Wagner og fleiri. Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur tónlistina og þeir Bergur Ebbi og Snorri afhjúpa óvæntar tengingar hennar við menningu okkar og samtíma af sinni alkunnu skarpskyggni og húmor.

Bergur Ebbi á að baki langan feril sem rithöfundur, uppistandari og fyrirlesari og Snorri Helgason hefur starfað sem tónlistarmaður í hálfan annan áratug og á að baki fjölmargar sólóplötur og leikhúsverkefni. Saman hafa þeir sent út hlaðvarpið Fílalag frá árinu 2014 en þættirnir eru orðnir á þriðja hundrað talsins og samanlögð hlustun nærri milljón. Þeir hafa stigið á svið í Borgarleikhúsinu með sýningar upp úr hlaðvarpinu og sýnt þætti um íslensk dægurlög á RÚV. Á síðasta starfsári komu þeir svo fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á fjölsóttum tónleikum.

Á tónleikunum á Menningarnótt má heyra lagið Verum í sambandi sem er eitt vinsælasta lag Sprengjuhallarinnar, hljómsveitarinnar sem Bergur Ebbi og Snorri Helgason léku saman í um árabil.

Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir.

Svipaðir viðburðir

HEMRA (Spánn)- Klassískur gítar innblásinn á Íslandi.
Menningarnótt með Fríðu Hansen og Split Circle
Þrykk og plötur þeirra
Fatamarkaður Góða hirðisins
Sjálfstæðisdagur Úkraínu
Þrykkja með LEGO
Söngleikja Pop-Up Viðlags
Listamannaspjall um sýninguna Ómælislaug
Opnun Zúlógía - Gabríela Friðriksdóttir
Hreimur & Vignir á menningarnótt
RVK X Streetwear Pop-Up
BEING ME
Hjartað slær á Hjartatorgi
HEMRA - Klassískur gítar innblásinn á Íslandi.
Vöfflukaffi - Klapparstíg 40
Vöfflukaffi í Heilmannsbæ
Djass Flóð
Tónaflóð Rásar 2
María & Sjonni
Slóðir

#borginokkar