Ævintýra sögu- og föndursmiðja I 2. hæð
24, ágúst 2024
Opið frá: 13.00 - 14.00
Vefsíða
https://borgarbokasafn.is/vidburdir/born/menningarnott-innilega-bokasafninu
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Prinsessur fara líka í útilegur og elska að drullumalla í læknum á tjaldsvæðinu, í prinsessukjólnum að sjálfsögðu, hlaupa um berfættar og fara í könnunarleiðangur upp á hól. Skemmtilegast þykir þeim þó að lesa sögur fyrir vini sína á meðan þeir liggja í grasinu og leita að kynjaverum í skýjabólstrunum. Komum okkur notalega fyrir og njótum þess að hlýða á snjóprinsessuna, snjódrottninguna og fjallamanninn lesa fyrir okkur ævintýri á ensku, frönsku og spænsku. Á eftir verður kórónuföndur, leikir og dans.