Brekkusöngur við „varðeld“ | 1. hæð - Bókatorgið
24, ágúst 2024
Opið frá: 18.00 - 18.30
Vefsíða
https://borgarbokasafn.is/vidburdir/born/menningarnott-innilega-bokasafninu
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Ímyndum okkur eitt augnablik að gólfið í Grófarhúsinu sé mjúk og grasivaxin brekka, bókahillurnar séu klettar og það snarki í eldinum fyrir framan okkur, við finnum jafnvel reykjarlyktina ef við öndum djúpt inn um nefið. Þenjum saman raddböndin við gítarundirleik og kveðjum sumarið með allsherjar brekkusöng...Undir bláhimni, Kveikjum eld, Reyndu aftur og öll hin gömlu og góðu líka.