Plöntuskipti | Blóm og græðlingar

Hraunbær 119, 110 Reykjavík

Dagsetningar
Borgarbókasafnið í Árbæ
24, maí 2020 - 08, september 2024 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 13.00 - 15.00

Vefsíða https://borgarbokasafn.is/vidburdir/learning-coffee-breaks-talks-discussions/plontuskipti-blom-og-graedlingar
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Þennan sunnudag eru allir blómaunnendur velkomnir á bókasafnið með plöntur, græðlinga (afleggjara) og fræ til að skiptast á við aðra ræktendur.
Inni á safninu verður pláss fyrir inniblómin en úti á svölunum er hægt að vera með garðplöntur.

Allir sem áhuga hafa plöntum fyrir heimilið eða í garðinn, eru hvattir til að koma og gera góð skipti. Þeir sem ekkert hafa til skiptanna eru líka velkomnir það er aldrei að vita nema hægt sé að fá plöntu, afleggjara eða fræ á góðum kjörum.
Einnig er þetta upplagt tækifæri fyrir þá sem eiga umfram, að deila með öðrum.

#borginokkar