3frakkar_2

Þrír frakkar hjá Úlfari

Baldursgata 14, Reykjavík 101, +3545523939

Opnunartími:
mán - fös: 11.30 - 22.00
lau - sun: 18.00 - 22.00

Vefsíða: www.3frakkar.is

Veitingastaðurinn Þrír frakkar hjá Úlfari var stofnaður 1. mars 1989 og hefur verið rekinn af fjölskyldu Úlfars Eysteinssonar, matreiðslumeistara síðan þá.
Veitingastaðurinn er staðsettur í miðbænum og er í göngufæri við helstu verslanir og þjónustu í hjarta Miðborgarinnar. Úlfar hefur ávalt sérhæft sig í fiskréttum og staðurinn helst þekktur fyrir það. Einnig er boðið upp á hvalkjöt, sjófugla o.fl.
Staðurinn tekur 44 gesti í mat og hefur staðurinn kappkostað við að veita sem besta þjónustu til viðskiptavina sinna. Reynt er að stilla verðlagi í hóf og er til að mynda boðið upp á ódýrari matseðil í hádeginu.

​Opnunartími er sem hér segir: mánudaga til föstudag frá kl. 11:30 til 14:30 og 18:00 til 22:00. Laugardag og sunnudag frá kl. 18:00 til 22:30

#borginokkar