89617920_3508274299187556_216792865

Rammagerðin

Bankastræti 9, Reykjavík 101, 5356690

Opnunartími:
mán - fös: 9.00 - 21.00
lau - sun: 10.00 - 21.00

Vefsíða: www.rammagerdin.is

Rammagerðin var stofnuð árið 1940 og er ein elsta gjafavöruverslun landsins.

Eins og nafnið gefur til kynna var uppistaða rekstursins á þeim tíma rammagerð og innrömmun. Árið 1949 hóf fyrirtækið að selja ullarvöru og íslenskt handverk, ekki síst til að þjóna viðskiptavinum sem vildu senda gjafir til vina og ættingja erlendis.

Allar götur síðan hefur Rammagerðin verið leiðandi í því að bjóða fjölbreytt úrval af vörum frá íslensku handverksfólki og hönnuðum ásamt vörum úr íslensku hráefni.

#borginokkar