Mokka Kaffi
Skólavörðustígur 3, Reykjavík 101, 552 1147
Opnunartími:
mán - sun: 9.00 - 18.00
Vefsíða: https://www.mokka.is/
Tölvupóstur: mokka@mokka.is
Mokka eitt elsta kaffihús Reykjavíkur, opnað 1958 og fyrst til að bjóða Espressó og Latte á Íslandi. Úrval af kökum, samlokum, heitt súkkulaði og vöfflur.
Mokka kaffi var stofnað árið 1958 af Guðmundi Baldvinssyni og Guðnýju Guðjónsdóttur. Segja má að Espresso-kaffihúsamenningin á Íslandi hafi hafist þegar Mokka var opnað en þar var fyrsta Espresso kaffivél landsins. Á Mokka kynntust landsmenn ekki aðeins nýrri tegund af kaffi, heldur einnig því að kaffi og myndlist áttu góða samleið. Bjóðum upp á ítalskt kaffi, heitt súkkulaði, meðlæti, samlokur og að margra mati bestu vöflur bæjarins.