c1ff2d085f842dbcbcd36a70907cef5e

Kanínuholan-fornbókamarkaður POP-UP

Stangarholt 10, Reykjavík 105, 8221703

Vefsíða: https://www.instagram.com/kaninuholan/

Bílskúr breytist í fornbókamarkað. Á markaðnum verður mikið af bókum úr safni Geirlaugs Magnússonar skálds sem hefði átt afmæli 25. ágúst og er markaðurinn því haldinn honum til heiðurs. Einnig er svokallaður Indiebookstoreday vestanhafs og er þetta í fyrsta sinn sem Kanínuholan tekur þátt. Það verða bækur á fjölmörgum tungumálum s.s. íslensku, dönsku, ensku, pólsku, rússnesku og þýsku og af ýmsu tagi. Einnig verður hægt að skipta á bókum eða koma með bækur til þess að veita bókunum lengra framhaldslíf. Sóttvarnarreglur verða að sjálfsögðu virtar og fólk beðið um að taka tillit til þeirra með því að nota spritt (sem verður á staðnum) og viðhalda tveggja metra reglu í hvívetna. Verkefnið er styrkt af Reykjavíkurborg, sem hluti af Sumarborgin 2020.

#borginokkar