117904525_4723511794340796_10879654

Grái Kötturinn

Hverfisgata 16, Reykjavík 101, 5511544

Opnunartími:
mán - sun: 8.00 - 14.30

Vefsíða: www.graikotturinn.is

Opið alla daga frá kl. 8.30-14.30. Eldhúsið lokar kl. 14.00 og við lokum hurðinni yfirleitt kl. 14.30.

Við eigum erfitt með að taka frá borð, rúlleríið hjá okkur er bara þannig. Það er sjaldan sem það er alveg stappfullt hjá okkur þannig að þér er óhætt að koma, við eigum alltaf sæti handa þér. En ef þú vilt heyra í okkur er síminn hjá okkur 551 1544.

Við erum sérstaklega stolt af brauðinu okkar og pönnukökunum, sem við búum til sjálf frá grunni. Við búum einnig til túnfisksalatið á staðnum eins og hummusinn okkar. Við erum þó líklega þekktust fyrir Trukkinn, sem inniheldur egg, beikon, kartöflur, pönnukökur, tómata í sósu og ristað brauð. Kaffið sem hún Valdís blandar fyrir okkur er líka einstaklega gott. En þú kemst ekki að því hve gott þetta er nema þú prófir! Komdu því endilega í heimsókn til okkar.

#borginokkar