Golfklúbbur Reykjavíkur
Korpúlfsstaðavegur-Go, Reykjavík 112, 5850200
Opnunartími:
mán - sun: 8.00 - 22.00
Vefsíða: www.grgolf.is
Tölvupóstur: gr@grgolf.is
Golfklúbbur Reykjvíkur rekur tvo glæsilega golfvelli innan höfuðborgarsvæðisins sem hvor hefur sína sérstöðu. Grafarholtsvöllur er 18 holu völlur sem liggur á grýttu landi í Grafarholtinu, þar takast kylfingar á við krefjandi brautir í fallegu umhverfi. Korpúlfsstaðavöllur er 27 holu völlur sem liggur við það sögufræga hús Korpúlfsstaði, völlurinn liggur meðfram sjó og er afar fallegur strandvöllur sem erlendum kylfingum finnst gaman að heimsækja.