GAETA-JPEG-hidef-2

Gaeta Gelato

Aðalstræti 6, Reykjavík 101, -

Opnunartími:
mán - fös: 14.00 - 22.00
lau - sun: 12.00 - 22.00

Vefsíða: https://gelato.is/

Gaeta Gelato er fyrsta verslunin í Reykjavík sem selur gelatoís og opnaði hún vorið 2020. Þrátt fyrir að vera sú fyrsta sinnar tegundar í borginni þá erum við engir aukvissar þegar kemur að gelatogerð - við búum yfir 25 ára reynslu í faginu. Í allan þann tíma unnum við að því að fullkomna handbragðið sem þarf til og seldum afurðir okkar á götum Ítalíu. Gelatoísinn okkar er ávallt nýlagaður og í hann fara fyrsta flokks íslensk hráefni á borð við mjólk, rjóma og skyr. Við notum einnig ítölsk úrvalshráefni á borð við pistasíur frá Sikiley og heslihnetur frá Piemontehéraði til að ná fram akkúrat rétta bragðinu. Í hverri viku bjóðum við upp á ‘bragðtegund vikunnar’ þar sem við leyfum okkur að blanda saman og búa til alls konar óvæntar og gómsætar samsetningar bragðtegunda. Einnig erum við ávallt með átta veganbragðtegundir í boði, því gelato er jú fyrir alla.

#borginokkar