Forréttabarinn
Opnunartími:
mán - sun: 16.00 - 23.00
Vefsíða: www.forrettabarinn.is
Tölvupóstur: info@forrettabarinn.is
Forréttabarinn opnaði árið 2011 og er nú rekinn af Róbert Ólafssyni. Hann hefur starfað sem kokkur allt frá árinu 1994 á hótelum og á veitingastöðum um allan heim, þar á meðal á Íslandi, Þýskalandi, Bandaríkjunnum og Frakklandi.
Forréttabarinn býður upp á úrval forrétta og eftirrétta í ýmsum stærðum og gerðum. Lögð er áhersla ferskt, íslenskt hráefni en matreiðslan er innblásin af áhrifum Suður-Evrópu. Einnig er gott úrval grænmetisrétta og fjögurra rétta samsettu matseðlarnir eru sérstaklega vinsælir.
Á barnum er gott úrval af innlendum og alþjóðlegum bjór af krana. Léttvín í glösum og spennandi hanastél eru einnig í boði. Ekki missa af happy hour frá klukkan 16 – 19 alla daga á kranabjór og vínglösum hússins.
Húsnæði Forréttabarsins var byggt árið 1939 og hýsti um árabil, stálsmiðju, netaverkstæði og vörulager. Síðar tók Samband íslenskra listamanna húsið á leigu og innréttaði efri hæðir hússins undir vinnustofur listamanna. Síðla árs 2011 opnaði Forréttabarinn á helmingi jarðhæðarinnar og 2 árum síðar á allri hæðinni með nýjum bar.
Forréttabarinn er nútímalega hannaður en hátt er til lofts eins og gjarnan er í gömlum iðnaðarhúsnæðum. Minimalísk Skandinavísk hönnun í aðalrými með listaverkum – stórum gluggum og opnu eldhúsi. Barsvæðið er með viðarborðum smíðuðum úr gömlu bryggju timbri.
Forréttabarinn er staðsettur í hjarta borgarinnar, í nálægð við höfnina en þessi skemmtilega staðsetning á stóran þátt í að skapa góðu stemninguna sem Forréttabarinn er vel þekktur fyrir.