Draumaland Frístundaheimili
Barónsstígur 32, Reykjavík 101, 4115570
Opnunartími:
mán - fös: 13.40 - 17.00
Vefsíða: https://tjornin.is/fristundaheimili-6-9-ara/draumaland-2/
Tölvupóstur: draumaland@rvkfri.is
Draumaland er frístundaheimili fyrir börn í 1.-4. bekk í Austurbæjarskóla. Draumaland er starfrækt eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur til kl. 17:00, staðsett við Barónsstíg 32, 101. Reykjavík.
Forstöðumaður Draumalands er Kristófer Nökkvi Sigurðsson
kristofer.nokkvi.sigurdsson@rvkfri.is
Aðstoðarforstöðumaður er Þorbjörg Roach
thorborg.roach.gunnarsdottir@rvkfri.is
Leiðarljós frístundaheimilanna er að hver einstaklingur fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af ÖRYGGI – VIRÐINGU – VÆNTUMÞYKJU – VELLÍÐAN
Lögð er áhersla á að þroska félagslega færni í samskiptum í gegnum leik og starf sem og virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu. Frístundaheimilin leitast við að nota lýðræðislega starfshætti, efla hæfni barnanna til að móta sér sjálfstæðar skoðanir og hafa áhrif á umhverfi sitt og aðstæður.
Þjónusta við börn með sérþarfir er skipulögð í hverju frístundaheimili fyrir sig í samvinnu við foreldra, skóla og aðra fagaðila er tengjast börnunum.