Álftamýrarskóli
Álftamýri 79, Reykjavík 108, 411 7340
Vefsíða: https://alftamyrarskoli.is/
Tölvupóstur: alftamyrarskoli@rvkskolar.is
Álftamýrarskóli er heildstæður grunnskóli þar sem starfa 420 nemendur í 1.-10. bekk og um 60 starfsmenn.
Í Álftamýrarskóla er nemandinn í brennidepli, líðan hans og þarfir. Stefnt er að því að nemendur njóti náms í hvetjandi umhverfi sem virkjar frumkvæði þeirra, hugvit og sköpun. Með það markmið í huga er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám þar sem boðið er upp á sveigjanlega náms- og kennsluhætti svo að hver og einn nemandi fái nám við sitt hæfi.
Við leggjum mikla áherslu á gott samstarf við foreldra en það samstarf er lykillinn að farsælu skólastarfi og velgengni nemenda. Við byggjum uppeldisstefnu okkar á uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar
Frístundaheimilið Álftabær er fyrir börn í 1-4 bekk í Álftamýrarskóla og félagsmiðstöðin Tónabær býður upp á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börn og unglinga.
Skólastjóri er Hanna Guðbjörg Birgisdóttir.