Pönksafn Íslands
Pönksafnið heiðrar tónlist og tíðaranda sem hefur mótað tónlistarmenn og hljómsveitir til dagsins í dag, fólk sem þorði að vera öðruvísi.
Einn kunnasti pönkari sögunnar, Bretinn John Lydon – þekktur sem Johnny Rotten þegar hann var söngvari hinnar byltingarkenndu pönksveitar Sex Pistols – opnaði Pönksafn Íslands við Bankastræti. Safnið er á fyrrverandi almenningssalerni við götuna sunnanverða sem þekkt var sem Núllið en því var lokað fyrir um áratug.
Í Pönksafni Íslands gefur að líta ljósmyndir og allskyns muni sem tengjast því sem kalla má pönktímabilið á Íslandi, á árunum um 1980. Dægurtónlistarsaga landsins er rakin í stuttu máli fram að þeirri tónlistarbyltingu sem kennd hefur verið við pönk og nýbylgju og birtist í rómaðri heimildarkvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar Rokk í Reykjavík. Á sýningunni er einnig fjallað um það hvernig margir listamenn sem spruttu úr þeirri frjóu deiglu hafa síðan gert garðinn frægan, þar á meðal Sykurmolarnir, Björk Guðmundsdóttir og Sigur Rós.
Komdu og stígðu inn í pönktímabilið á Íslandi.
Pönkið lifir!