Ölduselsskóli
Öldusel 17, Reykjavík 109, 411 7470
Vefsíða: http://www.olduselsskoli.is/
Tölvupóstur: olduselsskoli@rvkskolar.is
Ölduselsskóli er fyrir 1.-10. bekk. Skólastjóri er Elínrós Benediktsdóttir.
Frístundaheimilið Vinaheimar er við Ölduselsskóla og félagsmiðstöðin heitir Hólmasel við samnefnda götu.
Í Ölduselsskóla er leitast við að sníða skólastarfið í samræmi við eðli og þarfir nemenda. Stuðlað er að alhliða þroska og menntun hvers og eins og stutt er við jákvæða hegðun nemenda. Ölduselsskóli starfar eftir grunnskólalögum og aðalnámskrá grunnskóla.