Breiðholtsskóli
Vefsíða: http://www.breidholtsskoli.is/
Tölvupóstur: breidholtsskoli@rvkskolar.is
Í Breiðholtsskóla er 1.-10. bekkur. Skólastjóri er Ásta Bjarney Elíasdóttir.
Frístundaheimilið Bakkasel er við Breiðholtsskóla og einnig félagsmiðstöðin Bakkinn.
Breiðholtsskóli er í hjarta Breiðholtshverfis í Reykjavík og stendur við Arnarbakka 1 - 3. Við skólann er góð útisundlaug og stórt íþróttahús.
Lögð er áhersla á árangur fyrir alla nemendur og einkunnarorðin ábyrgð, traust og tillitssemi eru leiðarljós í daglegu starfi skólans. Skólinn státar af fjölmenningarlegu samfélagi nemenda, foreldra og starfsmanna.
Í Breiðholtsskóla eiga nemendur að njóta sín sem best og fá tækifæri til að láta drauma sína rætast. Lögð er áhersla á læsi, félagsfærni og sjálfseflingu. Fjölbreyttir kennsluhættir og námsgleði nemenda skiptir miklu í Breiðholtsskóla því ánægðir og glaðir nemendur eiga auðveldara með að nýta sér metnaðarfulla kennslu samhentra kennara.