klettaskoli

Klettaskóli

Suðurhlíð 9, Reykjavík 105, 411 7950

Vefsíða: http://www.klettaskoli.is/

Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun. Klettaskóli þjónar öllu landinu og fyrir nemendur með:
Miðlungs, alvarlega og djúpa þroskahömlun með eða án viðbótarfatlana.
Væga þroskahömlun og skilgreinda viðbótarfötlun/fatlanir svo sem einhverfu, blindu, heyrnarleysi og alvarlega hreyfihömlun.

Klettaskóli er sérskóli á grunnskólastigi sem þjónar öllu landinu. Hann tók til starfa árið 2011. Klettaskóli leysir af hólmi sérskólana Safamýrarskóla og Öskjuhlíðaskóla. Reykjavíkurborg rekur skólann en flestir nemendur skólans eru búsettir í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum. Skólagöngu nemenda sem búsettir eru utan Reykjavíkur fjármagna heimasveitarfélög nemendanna. Þátttökubekkur frá Klettaskóla er starfræktur í Árbæjarskóla. Þátttökubekkur er sérhæft námsúrræði undir stjórn Klettaskóla en með aðsetur í almennum grunnskóla. Eitt af hlutverkum skólans er að veita starfsfólki annarra grunnskóla ráðgjöf og kennslufræðilegan stuðning vegna nemenda sem hafa svipaðar námsþarfir og nemendur í Klettaskóla.

#borginokkar