barnaskolihjalla

Barnaskólinn í Reykjavík

Skógarhlíð 6, Reykjavík 105, 555 7910

Vefsíða: https://bskrvk.hjalli.is/

Skólastjóri er Ragnhildur Ásgeirsdóttir. Fjöldi nemenda er 180 og fjöldi starfsmanna er 35.

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Reykjavík var settur 1. október 2008. Hann var fyrst til húsa í leikskólanum Laufásborg og síðar við Suðurgötu 14, í hjarta miðborgarinnar og í næsta nágrenni við ýmsar miðstöðvar menningar og lista. Haustið 2009 fluttist skólinn í varanlegt húsnæði við Hlíðarfót 7 í Öskjuhlíðinni þar sem hann starfar í náinni samvinnu við leikskólann Öskju sem einnig er rekinn af Hjallastefnunni.

Skólinn er sjálfstætt rekinn skóli skv. 43. grein grunnskólalaga og starfar á grundvelli skipulagsskrár sem staðfest er af menntamálaráðherra. Skólanefnd og stjórn Hjallastefnunnar fara með æðsta vald í málefnum skólans skv. grunnskólalögum.

#borginokkar