Austurbæjarskóli
Barónsstígur 32, Reykjavík 101, 411 7200
Vefsíða: http://austurbaejarskoli.is/
Tölvupóstur: austurbaejarskoli@rvkskolar.is
Í Austurbæjarskóla er 1.-10. bekkur. Skólastjóri er Kristín Jóhannesdóttir.
Frístundaheimilið Draumaland er við skólann og félagsmiðstöðin 100og1.
Austurbæjarskóli er heildstæður grunnskóli og stendur við Barónsstíg í Reykjavík. Nemendur eru u.þ.b. 420 og eru að jafnaði tvær bekkjardeildir í hverjum árgangi.
Austurbæjarskóli leitast við að sníða skólastarfið í samræmi við eðli og þroska hvers nemanda.
Einkunnarorð skólans eru vöxtur, vilji, víðsýni og vellíðan.