Plantan kaffihús
Opnunartími:
Þrið - fös: 8.00 - 17.00
lau - sun: 10.00 - 17.00
Vefsíða: https://www.plantankaffihus.is/
Tölvupóstur: plantankaffihus@plantankaffihus.is
Plantan er kaffihús með litlum matseðli, samlokum og sætabrauði á Njálsgötu 64 rekin af Hrafnhildi Gunnarsdóttur, Bernódusi Óla Einarssyni og Júlíu Sif Liljudóttur. Boðið er upp á gott kaffi, matseðilinn einfaldur og allt á boðstólnum plöntumiðað.
Bakkelsi og réttir rúlla aðeins þar sem sköpunargleði og breytileiki fær að njóta sín svo ekki er alltaf það sama í boði. Á staðnum er hlýtt og heimilislegt andrúmsloft þar sem fólk getur komið og borðað í hádeginu, gripið sér kaffi og sætabrauð á leiðinni í vinnuna eða á fundinn, eða fjölskyldur og vinir geta hisst eftir vinnu- eða skóladaginn.
Útum allt eru lifandi plöntur, gömul og ný húsgögn og borðbúnaður, rýmið er hreinlegt og snyrtilegt en á sama tíma lifandi og hlýlegt.
Þriðjudaga til föstudaga er opið frá 8 - 17 og um helgar er opið frá 10-17. Lokað er hjá okkur á mánudögum. Öll eru velkomin