100508774_3364902740195967_11350593

Slippbarinn

Mýrargata 2, Reykjavík 101, 560 8080

Opnunartími:
mán - fim: 15.00 - 23.00
fös - lau: 15.00 - 0.00
sun: 15.00 - 23.00

Vefsíða: https://www.slippbarinn.is/

Slippbarinn er fyrsti kokteilbarinn í Reykjavík og þar eru handverk í kringum gerð kokteila í hávegum höfð. Barþjónar staðarins nota ekki tilbúna líkjöra, bragðefni eða bittera heldur blanda og eima allt sitt frá grunni. Matur og drykkur byggja á klassískum grunni með snúningi en sérstaða barsins felst í einlægri nálgun og hugmyndafræðinni á bak við hvern kokteil og rétt á matseðlinum.

Krítartaflan, sem hangir við barinn, spilar stórt hlutverk í þeirri hugmyndafræði að Slippbarinn sé í sífelldri þróun og muni aldrei verða fullmótaður. Krítartaflan er ríkulega skreytt af ólíkum listamönnum eftir ákveðnu þema og útfrá því þema breytist jafnframt klæðaburður starfsfólks, mat- og drykkjarseðlar skipta um stíl og nýjir kokteilar verða til.

Slippbarinn er staðsettur á Icelandair hótel Reykjavík Marina. Hótelið opnaði í apríl 2012 í gamla Slippfélagshúsinu, sem um hálfrar aldar skeið hýsti starfsemi Slippfélags Reykjavíkur. Enn í dag eru skip dregin í slipp til viðgerða og málunar beint fyrir utan barinn sem saman setur svip sinn á höfnina í fullkomnum samhljómi.

#borginokkar