Sægreifinn
Geirsgata 1, Reykjavík 101, 553 1500
Opnunartími:
mán - sun: 11.30 - 22.00
Vefsíða: www.facebook.com/saegreifinn.seabaron
Tölvupóstur: seabaron8@gmail.com
Sægreifinn er hlýlegur, gamaldags veitingastaður sem býður upp á humarsúpu og yfir 8 tegundir af grilluðum fisk á spjóti.
Við komum 50 manns í sæti í þremur sölum. Í fremri salnum er setið á hrognatunnum en í aftari salnum eru venjulegir stólar og þar má einnig sjá eftirlíkingu af Kjartani heitinum Sægreifa, en hann situr þar í fullri stærð og fylgjist grannt með öllu. Á efri hæð Sægreifans eru sæti fyrir 30 manns og minnir helst á sumarbústað. Þar eru gamlar myndir og munir sem Sægreifanum hafa verið gefnir í gegnum árin.