107617249_1625436540970677_30094585

NORR11 - Sýningarrými

Hverfisgata 18, Reykjavík 101, 454 1111

Opnunartími:
mán - fös: 11.00 - 18.00
lau: 12.00 - 17.00

Vefsíða: www.norr11.is

Sýningarrýmið okkar er staðsett á Hverfisgötu 18 í fallegri gamalli byggingu, beint á móti Þjóðleikhúsinu, sem margir þekkja sem gamla Alþjóðahúsið. Rýmið er bjart og markmiðið er að gestum okkar líði eins og þeir gætu verið heima hjá sér eða á notalegum stað út í heimi. Rýmið tekur örum breytingum og við veljum vandlega inn það sem við viljum sýna hverju sinni en vöruúrval okkar spannar töluvert fleiri vörur en eru til sýnis hverju sinni.

Úr sýningarrýminu er innangengt á kaffihúsið og vínbarinn Mikka Ref í vesturhluta hússins.

Í samstarfi við Listval sýnum við verk eftir uppkomandi íslenska listamenn í bland við hönnunarvörur.

Sýningarrýmið er opið alla virka daga frá 11-18 og á laugardögum frá 12-17 en við bjóðum einnig upp á að bóka heimsóknir utan opnunartíma.

#borginokkar