Caruso
Opnunartími:
mán - fim: 12.00 - 22.00
fös - lau: 12.00 - 23.00
sun: 17.00 - 23.00
Vefsíða: www.caruso.is
Tölvupóstur: caruso@caruso.is
Ítalski veitingastaðurinn Caruso, er vinsæll og virtur veitingastaður í höfuðborginni, rekinn af sömu fjölskyldu í 15 ár. Nýlega flutti Caruso í endurreista sögulega byggingu í miðbænum sem var upphaflega byggð árið 1801. Stærsti hluti byggingarinnar, nema arininn eyðilagðist í eldsvoða árið 2007 og má segja að nýja húsið hafi verið byggt í kringum arininn sem stóð uppi eftir eldsvoðann.
Við bjóðum upp á forrétti og salöt, girnilegar pizzur og pastarétti, kjöt, fisk og sjávarrétti og stórkostlega eftirrétti.
Andrúmsloftið á Caruso er rómantískt og notalegt. Á föstudags og laugardagskvöldum er gestum okkar boðið upp á ljúfa gítartóna.