Kjalarnes
Kjalarnes er fámennasta hverfið í Reykjavík en á sama tíma er það langstærst að flatarmáli enda á sjálf Esjan heimilisfesti þar. Kjalarnes er nes sem skagar út í miðjan Faxaflóa sunnan megin við mynni Hvalfjarðar, gegnt Akranesi.
Á Kjalarnesi mætast sveit og borg og talsverður landbúnaður er stundaður í hverfinu í bland við borgarbrag samfélagsins.
Fólkið á svæðinu velur að búa á mörkum sveitar og borgar og er í mikilli nálægð við náttúruna. Á Kjalarnesi er um 600 manna þorp sem nefnist Grundarhverfi en alls búa 1.349 á Kjalarnesi (2019). Kjalarnes var áður sérstakt sveitarfélag en er búið að vera hluti af Reykjavík síðan 1998.
Kjalarnes liggur á milli Kollafjarðar og Hvalfjarðar og nær þetta svæði yfir strönd og grunnsævi frá Saltvík og Saurbæ. Mikið fuglalíf er þar árið um kring og ná straumendur alþjóðlegum verndarviðmiðum (194 fuglar).