Hlíðar
Hlíðahverfi liggur austan miðborgar Reykjavíkur allt að Kringlumýrarbraut. Helstu kennileiti hverfisins eru Perlan, Klambratún og Kjarvalsstaðir. Hlemmur, Háteigskirkja, Moskan í Reykjavík og Sjómannaskólinn. Elstu hlutar hverfisins, svæðin í kringum Hlemm og Norðurmýrina, byggðust upp á 3. og 4. áratug 20. aldar. Stærstur hluti hverfisins er í póstnúmeri 105.
Hverfið er gróið enda eitt af gömlu hverfunum í Reykjavík og státar af langri og merkilegri sögu.
Í hverfinu eru sex grunnskólar; Hlíðaskóli, Háteigsskóli, Klettaskóli og Brúarskóli, Ísaksskóli og Barnaskólinn í Reykjavík sem er á vegum Hjallastefnunnar. Menntaskólinn við Hamrahlíð, Sjómannaskólinn (Tækniskólinn), Tónlistarskólinn í Reykjavík og Háskólinn í Reykjavík eru í hverfinu auk menntavísindasviðs Háskóla Íslands (áður Kennaraháskóli Íslands). Hönnunardeild Listaháskóla Íslands er í Þverholti en þar rétt hjá starfaði áður um áratugaskeið Myndlistar- og handíðaskóli Íslands. Nýjasti framhaldsskólinn, Menntaskóli í tónlist, tók til starfa í Skipholti árið 2017. Blindraheimili Blindrafélags Íslands er við Hamrahlíð. Austurbæjarbíó og Tónabíó (nú Vinabær) eru í hverfinu. Þjóðskjalasafn Íslands er staðsett þar í gamalli mjólkurstöð Sambandsins og Náttúrugripasafn Íslands var þar við Hlemm frá 1960 til 2008. Kjarvalsstaðir (Listasafn Reykjavíkur) standa á Klambratúni. Verslun er víða í hverfinu kringum Hlemm, í Holtum og í Suðurveri. Landspítali er með starfsemi í Skaftahlíð þar sem áður var verslunarmiðstöð og félagsmiðstöðin Tónabær. Berjaya Reykjavik Natura Hotel (áður Hótel Loftleiðir) er líka í hverfinu.
Knattspyrnufélagið Valur er með mikla starfsemi í hverfinu á Hlíðarenda. Skátafélagið Landnemar er með skátaheimili nálægt Hlíðaskóla.
Íbúar í hverfinu (Hlíðahverfi og Norðurmýri) voru 12.178 talsins árið 2023