Háaleiti og Bústaðir
Eitt fallegasta útivistarsvæði borgarinnar, Fossvogsdalurinn er staðsettur í hverfinu. Dalurinn er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og því mikilvægasti hlekkurinn í keðju opinna svæða allt frá miðborg Reykjavíkur að Elliðavatni og Heiðmörk.
Háaleiti og Bústaðir markast af Kringlumýrarbraut, Suðurlandsbraut, Reykjanesbraut og sveitarfélaginu Kópavogi. Hverfið felur í sér nokkra hverfishluta – Háal
Í vestur markast hverfið af línu sem dregin er eftir miðri Kringlumýrarbraut. Í austur markast hverfið af Reykjanesbraut.
Í norður markast hverfið af línu sem er dregin um eftirtaldar götur og skal miðað við miðju þeirra: Suðurlandsbraut, Grensásveg og Miklubraut. Í suður markast hverfið af sveitarfélagamörkum Kópavogs.
Árið 2023 voru íbúar Háaleitis og Bústaða 16.345 talsins.