Flyover Iceland
Víðfeðmir jöklar, glæsilegir firðir og gamlar goðsagnir.
Flyover iceland notar nýjustu tækni til að veita þér raunverulega flugupplifun. Þú hangir í festingu fyrir framan 300 fermetra hnattlaga sýningartjald með fætur í lausu lofti og horfir á myndina okkar, sem fer með þig í æsispennandi ferðalag um ísland. Tæknibrellur, þar á meðal vindur, þoka og lykt, ásamt hreyfingum búnaðarins gera þess upplifun ógleymanlega.
- Sætin hreyfast með raunverulegum hætti svo þér finnst þú fljúga. Sveigður skjár umlykur þig svo þú ert á kafi í hasarnum. Vindur, þoka, lykt og dreymandi tónlist
- Sveigður skjár umlykur þig svo þú ert á kafi í hasarnum.
- FlyOver Iceland er sýning sem þú verður að sjá.
- Sjáðu meira af landinu þínu en þú hefur áður séð.
- Skemmtun sem hentar öllum aldurshópum.
- Sýndu vinum og vandamönnum fallega landið þitt á einstakan hátt.
- Hentar í öllum veðrum.
Tvær einstaka forsýningar
Sagan, goðsagnirnar og náttúran
Áður en aðalsýningin hefst verða sýndar tvær myndir með ensku tali sem skoða hlutverk náttúrunnar, tímans og mannsins á þessari einstöku eyju. Eldfjöll og jöklar, víkingar, tröll og fleira – þetta er mögnuð upplifun.
Stígðu inní ævintýraheim
Áður en flugferðin hefst verður þú umlukin töfrum Íslands. Flugleiðsögumennirnir okkar og tröllskessan SúVitra, leiða þig í gegnum tvö einstök ævintýri sem auðga ímyndunaraflið með sögum af Íslandi, Íslendingum og náttúruöflunum.
Langhúsið
Áður en farið er af stað mun íslenski sögumaðurinn bjóða þér inn í forníslenskt langhús víkinga. Við ljómann af eldstæðinu mun hann flytja sögur sem birtast svo ljóslifandi í skuggamyndum.
Brunnur tímans
Í Brunni Tímans kynnist þú umfangsmikilli sögu Íslands. Náttúruöflin og mannsandinn birtast þér ljóslifandi með aðstoð tónlistar, myndskeiða, myndefnis og tæknibrellna. Þetta er með leiðsögn SúVitru, persónu sem byggð er á þjóðsögum um tröll og er hönnuð af hinum ástsæla myndskreyti Brian Pilkington. Hún er ævaforn og táknar bæði íslenska visku og töfra landsins.
Sú vitra leiðir þig í gegnum þrjá mismunandi þætti. Fyrst upplifir þú orku landsins í gegnum kraftmikil, og gjarnan ofsafengin, náttúruöflin. Því næst kemur mannfólkið til sögunnar og tileinkar sér orðtiltækið „þetta reddast“. Loks sérð þú hvernig íslenska þjóðin hefur skapað sér líf á þessum harðbýla stað. Lífið heldur áfram, sama hvað gerist.