Breiðholt
Hverfið einkennist af líflegu hverfisstarfi og skemmtilegu mannlífi með áherslu á samskipti kynslóðanna. Í Breiðholtinu má finna Borgarbókasafnið - Menningarhúsið Gerðubergi en þar er umfangsmikil starfsemi, fjölbreytt viðburða- og sýningahald, salaleiga, kaffihús og fleira. Hverfið státar einnig af verslunarmiðstöðinni Mjóddinni, sundlaug Breiðholts, útillistaverki Erró auk fjölda stofnana og fyrirtækja.
Breiðholt er í austurhluta Reykjavíkur með 22.795 íbúa árið 2023.Nafnið er dregið af bænum Breiðholt, sem staðsettur var þar sem nú er Skógarsel. Hverfið skiptist í Efra-Breiðholt (Fell, Berg, Hólar), Neðra-Breiðholt (Bakkar, Stekkir, og Mjódd) og Seljahverfi.
Flestar verslanir og þjónusta eru staðsettar í Mjódd en einnig er verslunarkjarni í Efra-Breiðholti sem nefnist Hólagarður. Í Breiðholti eru 5 grunnskólar: Breiðholtsskóli, Seljaskóli, Ölduselsskóli, Fellaskóli og Hólabrekkuskóli og einn framhaldsskóli: Fjölbrautaskólinn í Breiðholti. Þjónustumiðstöð Breiðholts veitir íbúum og starfsfólki í stofnunum margvíslega þjónustu. Í hverfinu eru fjórar kirkjur: Breiðholtskirkja, Seljakirkja, Fella- og Hólakirkja og Maríukirkja.
Meðal annarra stofnana er eitt útibú Borgarbókasafns í Reykjavík sem staðsett er í Menningarhúsinu Gerðubergi. Í Breiðholti er einnig að finna félagsmiðstöðvarnar Miðberg hundrað og ellefu Bakkinn og Hólmasel.
Í hverfinu eru starfrækt þrjú íþróttafélög: Íþróttafélag Reykjavíkur, Íþróttafélagið Leiknir og Sundfélagið Ægir. Breiðholtslaugin er við Austurberg.
Skátafélögin eru Hafernir og Segull.