Árbær
Ein helsta útivistarperla borgarinnar, Elliðaárdalurinn, er staðsett í Árbæ ásamt Elliðarvirkjun. Dalurinn er mjög vinsæll til útivistar meðal hverfisbúa og annarra. Það má segja að hverfið einkennist af mikilli nánd við náttúruna og íþróttaiðkun en í hjarta hverfisins er ein vinsælasta sundlaug landsins, Árbæjarlaug. Ekki má svo gleyma Árbæjarsafni sem hefur lengi verið vinsælt að heimsækja allan ársins hring en safnið gefur góða mynd af umhverfi og bæjarbrag í Reykjavík á 19. og 20. öld.
Húsin eru klædd í mismunandi búning og skiptist safnsvæðið í torg, þorp og sveit sem gefur góða mynd af umhverfi og bæjarbrag í Reykjavík á 19. og 20. öld. Á sumrin er auðvelt að þekkja starfsfólk safnsins, sem klæðist búningum frá fyrri tímum, en það tekur virkan þátt í viðburðum safnsins og sýningum þess þar sem einstökum þáttum í sögu Reykjavíkur eru gerð skil.
Innblástur úr fortíðinni getur breytt því hvernig við sköpum okkar sameiginlegu framtíð. Komdu og gakktu inn í lifandi fortíð á Árbæjarsafni og fáðu betri skilning á fortíðinni og nútíðinni. Safnið leggur áherslu á endurvinnslu og sjálfbært samfélag. Taktu þér tíma, röltu á milli safnhúsanna og uppgötvaðu sögu Reykjavíkur í tíma og rúmi. Og já, ekki láta þér bregða en á sumrin má rekast á húsdýr á safnsvæðinu – þau eru flest vinsamleg nema kannski stöku hæna.
Til Árbæjarhverfis teljast Selás, Árbær, Ártúnsholt, Bæjarháls og Norðlingaholt.
Hverfið markast af Vesturlandsvegi, Úlfarsá að sveitarfélagamörkum Mosfellsbæjar, til austur og suðurs með sveitarfélagamörkum um Hólmsheiði að Elliðavatni, Elliðaám, syðri kvísl og Reykjanesbraut.
Íbúar Árbæjarhverfis voru 11.974 árið 2023